top of page
x-meiri-blatt.jpg

Um mig

Ég heiti Ómar Már Jónsson og er

oddviti M-listans til borgarstjórnar

heimasida-omar2.jpg

Hvaðan kem ég ? 

Ég ólst upp í Súðavík.  Fór að stunda sjómennsku snemma sem leiddi mig í Stýrimannaskólann í Reykjavík. Útskrifaðist með II stigs skipsstjórnaréttindi.  Fór aftur á sjóinn sem II og síðan I stýrimaður á togurum með hléum sem nýtt voru til náms við Tækniskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan sem Iðnrekstarfræðingur af markaðssviði.

 

Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps

Ráðinn sveitarstjóri Súðavíkurhrepps árið 2002 til loka kjörtímabilsins 2014.

Á þeim 12. árum gengdi ég trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið og stjórnvöld í ýmsum nefnum og ráðum.  Eitt af markmiðum mínum í sveitarfélaginu var að koma því rækilega á kortið, bæði að gera það aðlaðandi fyrir ungar fjölskyldur, laða að ný fyrirtæki með ný störf og betrumbæta innviði samfélagsins fyrir íbúanna og gera að spennandi valkosti fyrir ferðamenn.
Ég tel að þau markmið hafi mér ásamt sveitarstjórnum tekist vel að framkvæma.

 

Aftur til Reykjavíkur

Eftir að þriðja kjörtímabilinu lauk fluttum við fjölskyldan aftur til Reykjavíkur og hef ég verið framkvæmdastjóri í eigin fyrirtækjum ásamt því að sinna ráðgjafaverkefnum fyrir erlend fyrirtæki við að para saman íslensk fyrirtæki við erlend með samvinnu og samstarf í huga.  

​

Icelandic Plus ltd.

Ég starfaði sem framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Icelandic Plus ltd. frá 2015 til 2021. Það félag er með höfuðstöðvar í USA en lætur framleiða nammi fyrir hunda og ketti, búið til af íslenskum fyrirtækjum úr aukaafurðum frá fiskvinnslustöðvum og afurðastöðvum landbúnaðarins. Vörur félagsins eru seldar í um 7.000 verslunum í USA, Kanada og Ástralíu.

​

Miðflokkurinn

Skipaði 4. sæti Miðflokksins í Reykjavík suður í Alþingskosningunum 2021.

Er oddviti Miðflokksins til borgarstjórnar kjörtímabilið 2022-2026.

 

Mennta- og starfsferill

2011 -

Fjölda námskeiða í stjórnendafræðum, fjármálum, lögfræði, markþjálfun o.fl.  Allt námskeið sem hafa það að markmiði að gera mig að betri útgáfu af sjálfum mér og verða hæfari til að takast á við öll verkefni lífsins, hvort sem er í leik eða starfi. 

 

1991 – 1996

Tækniskólinn í Reykjavík. Útskrifaðist sem iðnrekstrarfræðingur af markaðssviði í lok árs 1996.

 

1986 – 1988

Stýrimannaskólinn í Reykjavík. Útskrifaðist með II stigs skipstjórnarréttindi vorið 1988.  

​

Önnur störf

Á þeim þeim tíma er ég starfaði sem sveitarstjóri tók ég að mér eftirfarandi trúnaðarstörf:

     

Stjórnarmaður í Byggðasafni Vestfjarða                     2011-2014

​

Formaður stjórnar Atvinnuþróunarf. Vestfirðinga.     2011-2014

​

Stjórnarm.í Byggðasamlagi Vestfj.                              2011-2014

​

Stjórnarm.í Fjórðungssamb. Vestf.                              2010-2014

​

Stjórnarmaður í Samt. sveitarf. á köldum svæðum.   2009-2015

​

Formaður stjórnar Melrakkaseturs Íslands ehf.          2007-2015

​

Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps                                     2002–2014

​

Í sveitarstjórn Súðavíkurhrepps                                  2006-2014

​

Framkvæmdastj.Fasteignaf. Langeyri ehf                  2005-2015

​

Stjórnarm. í Iceland Sea Angling hf.                           2003-2015

​

Framkvæmdastjóri og í stjórn Grundarstrætis ehf.    2002-2014

​

Seta í svæðisráði Svæðisvinnumiðlunar Vestfj.          2002-2010

​

​

Aðrar persónulegar upplýsingar

Er giftur Laufeyju Þóru Friðriksdóttur, hársnyrtimeistara.  Börn okkar eru Ester Lilja, búsett í Ástralíu, Friðrik Valur,  Aldís Ósk og Alda Marín. Barnabörnunum fjölgar og telja þau nú sex, þar af þrjú búsett í Ástralíu.

bottom of page