top of page

700 milljónir í hús og einn íbúi

Ekki eru allar ferðir til fjár og það á við um tilraun meirihlutans í Reykjavík til að skapa heimilislausum húsnæði. Eins þarft verk og það er, blasir við að nauðsynlegt er að vanda til verka og fara vel með takmörkuð fjárráð. Segja má að allt þetta hafi farið úrskeiðis þegar meirihlutinn ákvað að reyna að leysa vanda heimilislausra með því að setja upp smáhýsi víðsvegar í borginni. Nú er svo komið að ríflega 700 milljónir króna hafa verið settar í verkið og aðeins einn íbúi nýtir sér húsnæðið. Hvernig má það vera? Jú, aðferðarfræðin er röng. Það er fráleit nálgun að ætla að setja slík hús niður á fáförnum stöðum eftirlitslaust. Í Gufunesi eru fimm hús, þar býr einn maður, búið er að eyðileggja innbú annarra húsa og kveikja í einu þeirra. Í Skútuvogi eru þrjú hús sem hefur tekið óratíma að setja upp, þrátt fyrir að þau hafi komið tilbúin að utan. Þar býr enginn.



Flest smáhýsanna strönduðu á geymslusvæði borgarinnar í Skerjafirði þar sem þau stóðu í löngum röðum eftir að hafa verið flutt inn til landsins. Já, það var ekki einu sinni hægt að styðja við íslenskan iðnað. Verst er að á sama tíma hefur meirihlutinn tregðast við að styðja við þau samtök sem í nafni mannúðar eru að reyna að aðstoða þennan hóp. Dæmi um slíkt er Skjólið-dagsetur fyrir konur sem hafa t.d ekki fastan samastað yfir daginn. Hjálparstarf kirkjunnar rekur þetta úrræði og er það staðsett í Grensáskirkju. Borgarstjóri hundsaði allar óskir um styrki til þeirra þar til ekki var lengur hægt að verja slíka ákvörðun. Sama afstaða var til Hjálpræðishersins sem alltaf hefur reynt að aðstoða heimilislausa.

Nálgast þarf heimilislausa eins og aðra, þar sem hver og einn einstaklingur fær viðeigandi þjónustu og stuðning með mannúð að leiðarljósi. Allir vilja eiga aðgang að húsaskjóli og fá að vera í friði. Þessum 700 milljónunum hefði verið betur varið í að setja upp úrræði sem henta þessum einstaklingum og þá í samráði við aðila sem þekkja þarfir þeirra og vilja.

Þessu vil ég breyta fái ég til þess umboð ykkar í vor.

Setjum X við M þann 14. maí næstkomandi.


Höfundur, Sólveig Daníelsdóttir er geðhjúkrunarfræðingur, aðstoðardeildarstjóri Bráðaþjónustu geðsviðs og skipar 3. sæti á lista Miðflokksins til borgarstjórnar

0 comments
bottom of page