top of page

Borgarlínan og XD

  • Borgarlína mun ekki leysa núverandi umferðarvanda í borginni.

  • Borgarlína eykur ekki flæði umferðarinnar.

  • Borgarlína mun ekki minnka þann tafakostnað sem umferðin býr við í dag og talið er að kosti samfélagið yfir 50 milljarða kr. á ári.



Borgarlínan og XD

Skoðun á Vísi 15. apríl 2022


Miðvikudaginn 13. apríl sl. var oddvitum til borgarstjórnar boðið á fund hjá Samtökunum um bíllausan lífsstíl.


Ég er stuðningsmaður þeirra samtaka vegna þess að borgin á að beita sér fyrir samgöngum fyrir alla, líka þá sem vilja lifa lífinu án bíla.

Á fundinum flysjaði Gísli Marteinn börkinn utan af oddvitunum í samgöngumálum þannig að ekkert stóð eftir nema, já eða nei, með eða á móti.

Athyglisvert var að heyra Hildi Björnsdóttir, oddvita Sjálfstæðisflokksins svara því til, þegar afdráttarlaus svars var krafist af Gísla Marteini um hvort oddvitarnir væru með, eða á móti borgarlínu.


Hildur svaraði orðrétt: „Við styðjum borgarlínu, en viljum ekki útvatnaða útgáfu.”

X-D ætlar sér þannig að styðja við stefnu borgarstjóra um að halda áfram á þeirri vegferð að þröngva þungri borgarlínu inn í borgina.

Afstaða Hildar er athyglisverð vegna þess að á heimasíðu X-D má sjá samþykkt í samgöngumálum frá 26. febrúar sl. þar sem segir: ,,Sjálfstæðisflokkurinn er fylgjandi verulega bætum almenningssamgöngum, en leggur áherslu á að borgarlína þrengi ekki að notkun annarra bifreiða.”

Þeir sem hafa kynnt sér út á hvað borgarlínan gengur vita að það er eitt af megin markmiðum hennar að fækka akreinum m.a. á Suðurlandsbraut, Miklubraut og Háaleitisbraut.

Borgarlínan gengur hreinlega út á að þrengja að einka- og deilibílum, þ.e. taka meira pláss fyrir almenningsvagna á kostnað annarra bifreiða.


Stefna Miðflokksins er skýr þegar kemur að samgöngum fyrir alla. Enga borgarlínu.

· Borgarlína mun ekki leysa núverandi umferðarvanda í borginni.

· Borgarlína eykur ekki flæði umferðarinnar.

· Borgarlína mun ekki minnka þann tafakostnað sem umferðin býr við í dag og talið er að kosti samfélagið yfir 50 milljarða á ári.


Leiðin til að breyta borginni er ekki fólgin í meiriháttar skipulagsbreytingum sem tekur a.m.k. 15 ár að framkvæma. Breytingarnar eiga að gerast með eðlilegum hætti þannig að þær mæti nútíma- og framtíðar þörfum borgarinnar og geti þróast áfram. Þeim breytingum er hægt að ná fram án þess að beita þvingunum til að laga einn samgöngumáta á kostnað annars.


Það gerum við með mun betri ljósastýringum, setja upp göngubrýr yfir stofnæðar, eða með undirgöngum og fækkum þannig ljósabúnaði fyrir gangandi vegfarendur. Koma þarf fyrir mislægum gatnamótum á umferðamestu gatnamótununum og tryggja þannig óhindrað flæði umferðar án tafa. Með þeim hætti bætum við flæði umferðarinnar, aukum öryggi og lágmörkum tafatíma með framkæmdakostnaði sem er brot af því sem þung borgarlína kostar.

Miðflokkurinn vill beita sér fyrir því að stuðla að frelsi einstaklinga, þannig að allir geti valið sér þann samgöngumáta sem hentar hverjum og einum. Útilokum ekki eða takmörkum neinn samgöngumáta.


Ómar Már Jónsson, oddviti Miðflokksins til borgarstjórar og fyrrverandi sveitarstjóri.

Setjum X við M þann 14. maí nk.

0 comments
bottom of page