top of page

Draumur um betri borg!

Það sem var, kemur ekki aftur en draumar fortíðarinnar um framtíðina má sjá í gömlum húsabyggingum, listaverkum, stöðutáknum sem segja okkur sögur um það sem var



Draumur um betri borg

Ég er staddur í einni heitustu borg Evrópu. Búinn að vera hér um hríð og draga í mig menninguna, söguna og þjónustu hennar. Upplifa þá stemmingu sem hún er þekkt fyrir, finn hjarta hennar slá og drekk í mig söguna. Ég upplifi einnig hvar hún er stödd í hraða nútímans og get ímyndað mér hvernig framtíðin eigi eftir að umleika þessa borg. Hún hefur allt sem til þarf til að verða áfram í fararbroddi, að verða borgin sem er hvað mest talað um.


Tíðarandi ólíkra tíma fortíðarinnar hafa sett mark sitt á hana og þegar gengið er um á fallegu vorkvöldi sjást ummerki þess vel. Það sem var, kemur ekki aftur en draumar fortíðarinnar um framtíðina má sjá í gömlum húsabyggingum, listaverkum, stöðutáknum sem segja okkur sögur um það sem var. Borgin ber þess merki, hún er samansafn af gamla tímanum en er á sama tíma upptekin við að tala sig inn í framtíðina.


Ég er áhugasamur um borgir, hvernig þær urðu til, hvernig þær þróuðust í gegn um ólíka tíma og finn að það er auðvelt að hrífast. Bæði fyrir þá íbúa sem hafa valið að leyfa henni að umleika sig á ferðalagi lífsins og þá sem koma til að upplifa hjartslátt hennar, viljað staldra við um stundarsakir og fara ríkari heim.

Það er umtalað að íbúar hennar eru stoltir, þeir eru stoltir af því að tilheyra henni, vera hluti af heildinni og því sem hún stendur fyrir. Hún er þjónustuborg og íbúar upplifa hana sem borgina sína. Það ríkir ákveðið jafnvægi meðal allra og hún er í kröfuhörðu verkefni um að þjóna öllum á jafnréttisgrundvelli.


Hún er eitthvað meira en bara borg.

Hún skilur eftir sig minningar, nærandi upplifun, eitthvað hátíðlegt og upplífgandi. Á eftirminnilegan hátt slær hún á réttu strengina og stækkar þá sem í henni lifa.


Það er ekki einfalt að vera borg Borganna. Það eru gerðar miklar væntingar og er metnaðarfullt verkefni að halda þeirri stöðu, að vera fremst meðal jafningja, að veita þá þjónustu sem henni ber gagnvart mjög ólíkum hópum samfélagsins, þar sem allir eru með sínar væntingar og þrár.


Gæti þessi draumur verið um Reykjavík?


Ómar Már Jónsson, oddviti Miðflokksins til borgarstjórar og fyrrverandi sveitarstjóri

0 comments
bottom of page